Rektorskjör

Nú fer að líða að maður kjósi rektor. Stúdentar hafa áhrif upp á 30%. Ég var búinn að spá í þetta en núna lenti ég í spjalli um þetta og rektorsefnunum var lýst fyrir mér cirka á þessa leið: Maður sem á milljarða, maður sem á hundruð milljóna, húmanisti og síðan kona sem enginn veit hver er. Maðurinn sem ég ræddi við fór að beina huga mínum frekar að húmanistanum, það er líka sá sem ég þekki best.