Ég hef löngum velt því fyrir mér hvers vegna reykingar urðu að einhverju sem taldist ásættanlegt að gera í kringum annað fólk. Þetta er viðbjóðslegt, það er alveg ljóst. Með því að reykja í kringum einhvern lokuðu rými þá ertu að tryggja að sá þurfi að þvo fötin sín eftir á og að fara í sturtu.
Síðan er fólk einsog ég sem þolir þetta bara ekki og er töluverðan tíma að jafna sig á því að hafa verið innan um reykingafólk. Ég fæ einfaldlega höfuðverk af þessu sem stundum er viðvarandi í meira en sólarhring eftir að ég hef yfirgefið reykingasvæði.
En hvernig kom til að þetta varð ásættanlegt? Ég held að svarið liggi í hreinlæti. Þegar reykingar komust í tísku þá var hreinlætisstandardinn allt annar en núna, ég er nokkuð viss um að samkvæmt okkar mælikvarða þá hafi verið vond lykt af nær öllum. Kannski að sígarettureykur hafi í raun bara étið upp dáltið af þessari vondu lykt. Það hefur kannski verið þannig að lyktin skánaði við það að einhver reykti í herberginu.
Við vitum að notkun ilmvatns var mikið meiri áður fyrr, og þá í meira magni en okkur þykir þolanlegt í dag. Reykelsi voru meira notuð til að bæta andrúmsloftið. Aðstæður voru bara allt aðrar.
Það er mér hins vegar algerlega óskiljanlegt hvernig fólk getur verið svo vitlaust að reykja, sérstaklega fólk sem mér finnst skynsamt að öllu öðru leyti. Ein skýringin er augljóslega sú félagslega, með því að reykja þá ertu kominn inn hálfgerðan klúbb. Það er auðvelt að starta samræður á því að biðja um eld eða fá lánaða sígarettu. Ég er reyndar viss um að það eru til miklu betri leiðir að hitta fólk.

En Gneisti, reykingar eru kannski ógeðslegar og óhollar en þær eru bara svo kúl!
Málið er nú líklega það að flestir byrja að reykja þegar þeir eru of vitlausir til að átta sig á því hvað það er hættulegt og heimskulegt. Ég þekki engan reykingamann sem vill ekki hætta. Þegar reykingar urðu almennar vissi fólk ekkert um hættuna, héldu jafnvel að þetta væri heilsusamlegt, og vissulega þá slapp reykingafólkið við hina viðbjóðslegu lykt sem var af öllum hinum.
Hef aldrei skilið þetta reykingapakk sjálfur, það er ekki gott að reykja, maður kemst ekki í neina vímu sem talist getur, þú lyktar stöðugt eins og öskubakki og verður gulur í framan fyrir þrítugt.
En nei, þetta er svo gott upp á selskapinn…. bleh
Ég skil þetta ekki heldur en hver hefur sinn djöful að draga…
Ég að skrifa frétt um óbeinar reikingar um leið og þú ert að kvarta yfir þeim. Afar grunsamlegt, hefurðu einhver ítök á Mogganum?
Alltaf langaði mig verða svo töff að ég gæti farið að reykja, náði því bara aldrei.