Það er voðalega ógeðslegt að myndskeið sem sýnir morð í miðbænum gangi um netið. Reyndar var töluvert viðbjóðslegt að Stöð 2 skyldi sýna stóran hluta af þessu í fréttunum áðan. Það sem var einna óhuggulegast við þetta var allt fólkið sem stóð í kring og gerði ekki neitt. Það voru alveg nógu margir þarna til að stoppa árásina en mér sýndist enginn vera að reyna neitt.
