Mér var fyrir nokkru boðið að vinna tvo tíma að morgni á meðan föstu starfsmennirnir væru á fundi og fá borgað töluvert aukalega fyrir það. Ég þáði þetta. Þess vegna er ég vakandi núna.
Ég hélt einu sinni að ég væri B-manneskja en ég get alveg svissað yfir í að vera A-manneskja, mér finnst ekki erfitt að vakna snemma né að leyfa mér að sofa út. Mér finnst hins vegar voðalega leiðinlegt að vakna snemma og seint á víxl, ég þarf eiginlega að hafa einhvern fastan ryþma á þessu.
