Ókeypis peningar

Ég fékk of lítið borgað síðustu tvo mánuði, fékk núna leiðréttingu upp á 25 þúsund. Ég tók ekkert eftir þessu enda ekki vanur þessu 44% starfshlutfalli. Ég hló bara þegar mér var sagt þetta. Sumir taka svona fréttum víst illa, finnst þeir sviknir um eitthvað en fyrir mér eru þetta bara ókeypis peningar.