Iron Maiden og Duran Duran

Ég held að það verði tónleikar sumarsins. Sleppi Jesúsfríkinu sem gefur peninga í kristilega háskóla. Ég er reyndar meiri aðdáandi Duran en Maiden. Duran er náttúrulega einhver vanmetnasta hljómsveit allra tíma, höfðu gríðarleg áhrif en voru á ósanngjarnan hátt stimplaðir sem ómerkilegir. Stimpillinn er reyndar að hverfa.

Ég væri náttúrulega glaðastur ef þeir tækju lagið um einkabílstjórann en maður getur allavega treyst því að þeir taki lagið um venjulega heiminn. Reyndar er flest allt af Duran Duran (fyrri sem var án titils), Rio, Seven and the Ragged Tiger og Wedding Album (seinni án titils) vel þegið. Hef ekki hlustað almennilega á nýju plötuna, á hana en hef ekki nennt að rippa hana ennþá (hún er með einhverja leiðinlega afritunarvörn).