Ég verð að minna á sýningu Skeptíkusar á Secrets of the Psychics sem verður annað kvöld. Þarna er James Randi í essinu sínu. Hann tekur fyrir sjónvarpspredikara, miðla, gervivísindamenn, stjörnuspár og síðast en ekki síst Uri Geller sem varð þekktur fyrir að þykjast beygja skeiðar með hugarorkunni. Myndin er frábær. Eygló féll alveg fyrir henni og hún er nú ekki vön að nenna að horfa á svona efni.
Skemmtileg og fróðleg mynd sem verður sýnd klukkan 20:00 í stofu 132 í Öskju annað kvöld. Líklega síðasta sýning vetrarins.
Annars þá fékk Skeptíkus núna loksins að senda auglýsingu um þetta á Háskólastúdenta, af einhverjum ástæðum þá vorum við ekki í náðinni hjá fyrri stjórn skrifstofunnar.
