Íslendingabókarspennusaga

Ég kíkti í Íslendingabók fyrr í kvöld og sá þá að ein stelpan úr þjóðfræðinni er skyld mér í fjórða lið. Langamma hennar og langamma mín voru systur. Það sem mér þótti merkilegast var að langamma hennar hét Birgitta, semsagt konan sem mamma var nefnd í höfuðið á. Spennandi? Mér þótti það.