Síðustu viku hef ég þrisvar sinnum lent í því að það er verið að nota kennslustofur sem ég er að fara í þegar sá tími sem ég er að fara í á að vera byrjaður. Mér finnst þetta ótrúleg vanvirðing við stúdenta.
Núna áðan var einhver fyrirlestur í stofunni sem Norræn trú er kennd í. Við biðum rólega, kíktum svona aðeins inn til að minna á að tíminn væri á þrotum en ekkert gerðist. Þegar rúmar fimm mínútur voru liðnar af tímanum sem við áttum ákvað ég bara að opna dyrnar og benda á úrið mitt (metaforískt úr) til að koma fólkinu út. Það voru svona 30-40 að bíða þarna fyrir utan eftir að fyrirlesturinn kláraðist. Ég ber enga virðingu fyrir fólki sem sýnir tíma annarra slíka vanvirðingu.
