Hvað haldið þið eiginlega um mig?

Jæja, ég hef tekið saman niðurstöðurnar úr prófinu um Óla og ætla að deila þeim með ykkur. Í samantektinni hunsa ég þá sem virðast hafa svindlað.

Rétt rúmlega einn þriðji af þeim svörum sem bárust voru rétt sem er betra en hjá apanum sem ýtir handahófskennt á möguleika (og pissar á lyklaborðið).

1) Hver er aukagreinin mín?

  1. Trúarbragðafræði
  2. Þjóðfræði
  3. Safnafræði
  4. Heimspeki

Einsog allar spurningarnar í prófinu þá eru brögð í tafli hér. Ég byrjaði í safnafræðinni í haust en færði mig síðan í þjóðfræði. Heimspeki var ein af þeim greinum sem ég var að hugsa um að fara í áður en ég valdi bókasafns- og upplýsingafræðina.

Þetta var hins vegar sú spurning sem flestir náðu. Rúmlega tveir þriðju höfðu þessa spurningu. Safnafræðin fékk næst flest atkvæði og síðan heimspekin. Rétt áður en ég lét prófið á netið hafði ég verið að tala töluvert um þjóðfræðina sem gæti skýrt hvað fólk var að ná þessu.

2) Hvenær lét ég breyta nafninu mínu?

  1. 2002
  2. 2003
  3. 1999
  4. 2001

Ég breytti nafninu mínu snemma árs 2002. Flestir giskuðu á 1999, næstflestir á 2001 og síðan kom rétta svarið. Svona rétt fjórðungur hafði þetta á hreinu.

3) Hver er uppáhalds Queenmeðlimur minn?

  1. John (bassi)
  2. Brian (gítar)
  3. Roger (trommur)
  4. Freddie (Freddie)

Þessi spurning var sett meira í gríni en alvöru hér, hún vakti hins vegar sterkt viðbrögð hjá fólki sem taldi að Roger væri ekki í uppáhaldi hjá mér. Það Queenlag sem ég hlusta mest á er Drowse sem er eftir og sungið af Roger Taylor. Taylor á líka eina uppáhaldstilvitnunina mína: „I don’t like religion, it tends to fuck people up“. Þetta er spurningin sem Eygló klúðraði.

Flestir giskuðu að Brian væri minn maður og það var nokkuð öruggt (svona rúm 40%), Freddie komst bara í annað sætið með þriðjung atkvæða og síðan kom Roger sem hafði bara einu fleira atkvæði en John. Þetta var spurningin sem fæstir höfðu rétt svar við.

4) Hver af þessum myndum er í mestu uppáhaldi hjá mér?

  1. Mallrats
  2. Zoolander
  3. 12 Monkeys
  4. Raiders of the Lost Ark

Allar þessar myndir eru í töluverðu uppáhaldi hjá mér, Zoolander kannski hvað minnstu enda fékk hún bara tvö atkvæði. Mallrats fékk hins vegar rúman helming atkvæða. 12 Monkeys var með rúman fjórðung og er það gott því hún er snilld.

5) Hve lengi höfum við Eygló verið saman?

  1. 7 ár
  2. 6 ár
  3. 5 ár
  4. 4 ár

Ég var nýbúinn að tilkynna þetta á síðunni og um 40% höfðu þetta rétt. Fimm ár fékk næst flest atkvæði og síðan sjö ár.

6) Hvar er stærsta örið á líkama mínum?

  1. Vinstri upphandlegg
  2. Mjóhryggnum
  3. Hægra hnéinu
  4. Vinstra hnéinu

Hvernig á fólk að vita þetta nema að skoða mig þegar ég er í sturtu, sundi eða þau örfáu skipti sem ég er í stuttbuxum? Einn fimmti hafði þetta rétt, flestir giskuðu á mjóhrygginn og næst flestir giskuðu á vitlaust hné (þriðjungur).

7) Hver var uppáhaldshljómveit mín áður en ég féll fyrir Queen?

  1. Duran Duran
  2. Metallica
  3. Guns ‘n’ Roses
  4. Bítlarnir

Ég féll ekki fyrir Duran Duran almennilega fyrren um 1996, aldrei hafa G’n’R eða Metallica verið í sérstöku uppáhaldi hjá mér. Bítlarnir voru mínir menn í svona tvö ár.

Þriðjungur hafði þetta rétt, næst flestir giskuðu á Duran Duran og síðan voru Metallica og G’n’R á svipuðu róli.

8) Úr hvaða framhaldsskóla útskrifaðist ég?

  1. MA
  2. VMA
  3. Ármúla
  4. Verzló

Ég byrjaði framhaldsskólaferil minn í MA og kláraði rúmar 90 einingar þar. Ég fór síðan í fjarnám við VMA og síðan í fjarnám við Ármúla en útskrifaðist að lokum úr VMA þó ég hefði ekki verið í námi þar þá önn. Um 40% hafði rétt fyrir sér þarna, þriðjungur giskaði á MA, síðan komu þónokkrir með Ármúla og ein manneskja giskaði á Verzló! Grunar að þar gæti einhver verið að rugla mér og nafna mínum Njáli saman.

9) Á hvaða veitingahúsi borða ég oftast?

  1. Eldsmiðjunni
  2. Nings
  3. American Style
  4. Hótel Holt

Lykilorðið er oftast, ég borða oftast á American Style enda ódýrt að fara þangað og maturinn alltaf góður. Eldsmiðjupizzur eru í uppáhaldi hjá mér en ég panta yfirleitt þaðan. Nings er núorðið í minna uppáhaldi hjá mér, mér finnst ekki vera hægt að treysta á að maturinn þaðan sé góður. Hótel Holt hefur þá sérstöðu að vera eini svarmöguleikinn í prófinu sem enginn giskaði á.

Eldsmiðjan fékk helming atkvæða og American Style rétt um 30%.

10) Tvær berar konur eru á stofuveggnum mínum, þær eru:

  1. Venus og María Magdalena
  2. Venus og Afródíta
  3. Venus og Natalie Portman
  4. Venus og hjólreiðastúlka úr Bicycle Race myndbandinu

Nær helmingur þeirra sem svöruðu héldu að ég væri með mynd af stelpu úr Bicycle Race í stofunni minni, ég verð eiginlega að íhuga að redda mér slíkri mynd. Ég er með tvær myndir sem afi og amma áttu inn í stofu hjá mér og eru þær af Fæðingu Venusar og af Maríu Magdalenu (voðalega arískri í útliti miðað við gyðingastelpu).

Afródíta fékk næst flest atkvæðin, um þriðjung. Síðan kom rétt svarið en einungis tveir giskuðu á Natalie Portman (sem er vissulega glæsilegur kvenmaður).

Hvað getur maður sagt um þetta? Greinilega ætti fólk ekki að taka nærri sér að vera neðarlega, sum svör voru svo nálægt því að vera rétt að ekki er skrýtið að þau hafi lokkað ykkur frá því eina sanna.

Eygló er á toppnum með 90 stig, síðan eru Svenni mágur, Hafdís systir, Mummi mágur, Siggi vinur sem hefur þekkt mig síðan í núllbekk, Sísí og Daníel Freyr með 60 stig. Þarna koma tveir bloggarar sterkir inn, ég held ég hafi ekki einu sinni hitt Daníel… Sýnir hvað bloggið er undarlegt fyrirbrigði.

Dr. Sverrir var rétt í þessu að taka prófið en fær enga gráðu útúr því og svörin hans voru ekki tekin inn í þessa samantekt.

5 thoughts on “Hvað haldið þið eiginlega um mig?”

  1. Skemmtilegar niðurstöður. Ég held að ég hafi ansi oft valið þessi nálægu svör. Eða ekki.

Lokað er á athugasemdir.