Ég er að velta fyrir mér að færa mig yfir í mp3-spilara í bílnum. Lýst vel á einn en er ekki viss. Síðan er reyndar vandi með að það er erfitt að losa gamla spilarann úr bílnum. Það fylgdi víst „lykill“ með til að losa hann en sá er týndur. Þegar ég fór úr Charade’inum yfir í núverandi bíl þá fékk svona lykil lánaðan, spurningin er hvort að þeir eigi hann ennþá. Annars ætti maður að geta losað þetta öðruvísi.
Gamla tækið er annars orðið svona 5 ára gamalt og farið að láta á sjá. Takinn til að lækka á það til að festast alveg sem leiðir til þess að stundum hækkar maður þegar maður vill lækka. Síðan sést voðalega illa á skjáinn, stafirnir eru farnir að dofna mikið.
