Ég fór á Greifann á laugardagskvöldið. Ég pantaði mér hálfmána og þegar hann kom þá sá ég að það höfðu verið gerð mistök með matinn. Ég kallaði eftir þjónustustúlku og útskýrði málið. Þessu var bjargað, hún setti forgang á hálfmánan minn og bauð mér að hafa þann sem ég hafði fengið á meðan ég beið. Ég var ákaflega ánægður með þetta, maður lendir alltaf reglulega í að eitthvað fer úrskeiðis á veitingastöðum og það er misjafnt hvernig brugðist er við. Þetta var alveg til fyrirmyndar. Það spillti ekki fyrir að ég varð ekki var við reykingar á staðnum en það hefur stundum angrað mig. Það var líka búið að bæta við stóru glasi af Appelsíni á matseðill, áður var bara hægt að fá litla flösku.
Greifinn er semsagt góður. Ég hef stundum sagt það að maður geti ekki metið þjónustufyrirtæki á því hvernig það stendur sig þegar allt gengur vel. Það sem skiptir mestu máli er að ef eitthvað kemur upp á þá sé brugðist við því með þjónustulund og jákvæðni gagnvart viðskiptavininum. Þetta er það sem fær mann til versla aftur við fyrirtæki.
