Fór í Júróvisjón/afmælisveislu hjá Braga. Hitti þar Jósa hárgreiðslumann stjarnanna í fyrsta skipti (ef ég man rétt). Það var bömmer að Noregur tók þetta ekki, samsæri og aftur samsæri. Okkar vandi er að okkar bandalag er of lítið, við þurfum að fara að hluta Norðurlöndin niður. Augljóslega eiga Færeyjar og Grænland að fá sjálfstæði. Hinir og þessi landssvæði í Noregi og Svíþjóð ættu að fara sömu leið. Innan skamms þá vinnum við þetta.
Annars þá var gríska lagið mjög aumt, I’m your lover, undercover er bara of lélegt, jafnvel á Júróvisjón mælikvarða. Moldavía rokkaði svoltið ásamt nokkrum öðrum löndum.
Fyndið að Selma lenti í 16da sæti í forkeppninni, þetta er alveg Gleðibankinn.
