Fólk nær og fjær

Það er voðalega skrýtið að sjá nöfnin á neðanjarðarlestarstöðvum sem ég þekki í fréttum dagsins. Heyri tilkynningarnar óma í huga mínum, “Old Street, Old Street”. Ég hef líka verið að hugsa til Queenaðdáendanna sem voru að fara á tónleika í Hyde Park á morgun. Tónleikunum var vitaskuld frestað. Ég var á sínum tíma að spá í að fara á þá. Þetta er svo nálægt manni.

Írak er ekki nálægt manni. Maður getur falið hræðilegar fréttir þaðan fyrir sjálfum sér, getur leyft sér að hunsa þær. En London hlítur að leiða hugann beint að Írak.