Hiti

Ég er veikur. Í dag kom ég litlu í verk í vinnunni og hélt að ég væri bara latur eða uppgefinn eftir helgina en nei. Ég kom heim og skreið upp í rúm. Þegar ég vaknaði þá var mér ískalt. Mér hlýnaði ekkert við að borða. Eygló strauk mér til að finna hve kalt mér væri en sagði að ég væri eldheitur. Settist niður og mældi hitan, ég er með nærri 39°. Úff, ömurlegt, ömurlegt.