Hraunað yfir lýðinn

Fyrsta Háskólalistadjamm vetrarins var í gær. Ég mætti eftir vinnu og svo vel vildi til að Hraun var að fara að byrja. Þvílík gleði. Elli spurði mig hvort að ég vildi bjór, ég afþakkaði að sjálfssögðu. Elli spurði hvort að ég vildi appelsín og ég sagði já. Elli spurði næst hvort ég vildi borga appelsínið. Ég ákvað að borga það. Elli er góður að snappa viðskipti fyrir Stúdentakjallarann.

Ég var rosalega fyndinn á tímabili. Byrjaði á því að víxla hálftómu bjórglasi Arndísar og hálffullu glasi Ella. Elli fattaði ekki neitt. Næst ákvað ég að berjast gegn reykingum og stal kveikjaranum hans Jakobs. Kobbi tók sérstaklega fram að honum þætti það afskaplega fyndið. Kveikjarann notaði ég síðan í rólegu lögunum hjá Hraun.

Það er alveg ótrúlegt að sjá Hraun rífa upp stemminguna. Ótrúlegustu lög voru tekin. By the Power of Greyskull og hvaðnú ekki. Í hléinu flutti ég stutta ræðu sem var hálf augljós óskalagabeiðni (þó væntanlega óþörf), ég sagði semsagt „ég er rebell“. Eftir hlé var Rebellinn spilaður en einnig Rock me Amadeus. Ég dansaði einsog hálfviti því ég get ekki dansað öðruvísi. Ég dró líka ýmsa á dansgólfið. Annas dansar greinilega ekki þó maður rífi hann upp og beri hann yfir á dansgólfið.

Þegar ég ætlaði loksins að fara, var komin út um dyrnar þá heyri ég að Hraun er að fara að spila I want to Break Free. Ég stökk aftur inn og hljóp á dansgólfið. Eftir að hafa dansað við Break Free þá tók ég eftir að síminn minn var horfinn. Ég missti hann þegar ég hljóp aftur inn. Eygló hringdi í símann en ég hringdi í hann, það virkaði, ég sá rythmic backlightið undir einu borðinu. Happí endíng.

Eftir stendur sú spurning hvers vegna Hraun er ekki stærsta nafnið í íslenskri tónlist, stórskemmtilegir þegar þeir eru partíhljómsveit en hitta mann í hjartastað þegar þeir eru „alvarlegir“.

2 thoughts on “Hraunað yfir lýðinn”

  1. Mér finnst fyndið að þú dansir – en ekki efast ég um að þú sért skrautlegur. Hef ég séð þig dansa?

Lokað er á athugasemdir.