Að fella tjald

Í dag fór ég og felldi tjald, hef því enga gólflista lagt. Ég mætti fyrstur en síðan komu Elli og Kenneth framkvæmdastjóri SHÍ. Við byrjuðum en eftir smá tíma bættust þrír Röskvuliðar í hópinn. Annas kom síðan, góð mæting hjá H-listanum semsagt. Árni Helgason bættist síðan í hópinn. Við drifum tjaldið niður og satt best að segja þá rúluðum við Annas í þessu enda vanir og verklagnir menn. Anna Pála sýndi líka takta. Þetta gekk stórslysalaust fyrir sig og ég yfirgaf svæðið þegar allt var niðurbútað.

Ég lenti í geitungaævintýri, keypti mér kók, lagði það frá mér og þegar ég ætlaði að fá mér sopa þá kom geitungur upp. Ég henti dósinni frá mér enda eru geitungarnir víst ekki í góðu skapi þessa daganna. Hin fengu Pepsi Max og hafa því væntanlega ekki lent í geitungavandræðum.

2 thoughts on “Að fella tjald”

Lokað er á athugasemdir.