Faðir og móðir og dulmagn bernskunnar – special edition

Atriði númer tíu í færslu Davíðs Þórs um það sem hann lærði af sjónvarpinu undanfarna viku varð til þess að ég fékk hugmynd. Af hverju eru ekki gefnar út svona lengri útgáfur af bókum einsog er gert með kvikmyndir? Væntanlega lenda flestir höfundar í því að klippa út kafla sem þeir sjá eftir til þess að halda lengdinni hæfilegri (J.K. Rowling lendir samt væntanlega ekki þessu). Margir heitir aðdáendur væru örugglega meira en til í að lesa þessa aukakafla.

Það væri líka hægt að bæta við fleiri fítusum sem þekkjast af dvd-útgáfum. Það væri hægt að hafa ótal neðanmálsgreinar þar sem höfundurinn ræðir um hvernig kaffi hann var að drekka þegar kaflinn var skrifaður, hvernig veðrið var, hvaða bækur hann er að vísa í og að sjálfssögðu hvaða fólk hann er að dissa með því að skrifa það inn í skáldsöguna. Mörgum dvd-útgáfum fylgja líka atriði sem hafa klúðrast í upptöku. Það væri hægt að setja viðauka með uppköstum höfundarins á köflum þar sem allt er illa orðað og mislukkað. Þar að auki væri hægt að láta inn viðtöl við höfundinn, hans nánustu og að sjálfssögðu þá sem eru teknir fyrir í bókinni.

Ég sé að þetta verður the next big thing í bókaútgáfu. „Ætlarðu að kaupa þér nýju bókina hans Einars Más?“ „Nei, ég ætla að bíða eftir ítarlegu útgáfunni þar sem eru tvö aukabindi með viðbótarefni.“

7 thoughts on “Faðir og móðir og dulmagn bernskunnar – special edition”

  1. Hef lesið The Stand með Stephen King í upprunalegu útgáfunni (eitthvað um þúsund síður) og svo í útgáfunni „eins og hann hefði viljað hafa hana“ (eitthvað um tólfhundruð síður ef ég man rétt) sem er einmitt eina útgáfan sem er gefin út í dag…

    sú bók sýnir það svart á hvítu að ritstjórar eru til margra hluta nýtilegir… t.d. í að kötta burt óþarfan rant…

    Strumpakveðjur 🙂

  2. Rosalega er vont að sjá fólk skrifa „fítus“. Fídus væri strax einu númeri skárra.

  3. Var einmitt að klára að lesa bók í nótt sem var „stútfull af aukaefni“. Þar var m.a. annar endir, pælingar höfundar, soundtrackið úr bókinni og kaflar sem ekki voru notaðir. Þetta var Frægasti maður í heimi eftir Kristjón Kormák.

  4. Talandi um Faðir, móðir … þá er Guðbergur sér á báti með það að leyfa engum ritstjóra að koma nálægt bókunum sinni. Hann sjálfur á það hins vegar til að endurskrifa þær og gaf einmitt út endurbætta útgáfu af einhverjum eldri bóka sinna fyrir 2-3 árum. Annars er venjulega fullt af aukaefni um flesta höfunda fljótlega eftir þeir eru orðnir nógu gamlir/dauðir. Það er oftast kallað ævisögur …

Lokað er á athugasemdir.