Í nótt, eða í morgun ef ég ætla að vera heiðarlegur, dreymdi mig að ég hefði fengið 3,7 fyrir ritgerð sem ég skilaði fyrr í vetur. Ég var sár og las síðan ritgerðina sem var ákaflega léleg orðin. Sem betur fer var þessi ritgerð bara nokkuð góð þannig að ég býst við að fá allavega tvöfalt hærri einkunn fyrir hana. Þetta er væntanlega einhvers konar prófkvíði að koma þarna fram þó slíkt sé yfirleitt ekki í gangi hjá mér
