Formaðurinn rændi mér og sett mig í að útdeila pizzum í Öskju. Það gekk vel í svona tíu mínútur á meðan pizzurnar dugðu, síðan kláruðust þær og ég beið í 50 mínútur sílofandi fólki að fleiri kæmu. Fólk tók gleði sína þegar fleiri pizzur komu loks. Ég reyndi að lokka vini mína í Öskju til að hanga með mér og fá pizzu en bara Telma mætti, svoltið seint, og hafði Kalli sinn með. En ég eyddi töluverðum tíma þarna líka með Ösp sem er með mér í þjóðsagnafræðinni þannig að ég var ekki alveg einmana. Ég sagði náttúrulega öllum sem fengu pizzur að kjósa Háskólalistann og Telmu (brandari).
3 thoughts on “Að útdeilda pizzum”
Lokað er á athugasemdir.

með þessari pizzuútgjöf tel ég að Stúdentaráð hafi loksins náð sínu sanna markmiði…að gefa aumum og veslings háskólanemendum að éta.
Guð lofi Kbbanka!
Lifi SHÍ!
Raunar var þetta FS sem var að gefa pizzur ekki Stúdentaráð, betra að gefa þeim kredit. Við áttum einmitt eina pizzu eftir og fórum með hana á skrifstofu FS.
tek fáfræði mína til baka.
Lifi FS!
annars er þetta allt sama batteríið
Lifi anarkismi!