Slímóvits

Afmælisveislan hans Sigga var áhugaverð. Eftir stífa Tópasdrykkju ákvað Ásgeir að gefa fólkinu Slímóvits sem olli því að bæði Eygló og Siggi ældu. Siggi er núna sofandi heima hjá Ásgeiri en Eygló var nógu fljót að losa eitrið úr líkamanum þannig að hún slapp mun betur.

7 thoughts on “Slímóvits”

  1. Glæsilegt, og þá get ég hér með gefið myndinni nafnið „Life at its best.“
    Ég vissi ekki að Eygló hafi ælt. En Slivovice er eitthvað sem fer aldrei aftur inn fyrir varir mínar.

  2. hey, hvar keyptuð þið þetta? ég leitaði að þessu allstaðar í Kraká þarsíðast þegar ég var þar og enginn vildi selja mér svona ;(

  3. Fékk þetta gefins í fjallahverfi rétt hjá Zlín í Móravíu, en ætli það sé ekki best að leita að þessu í einhverju af gömlu Júgóslavíuríkjunum, a.m.k. á ég enn eftir að hitta fyrrum Júgóslava sem er ekki með flösku e-staðar upp í skáp …

  4. Sigrún, ég get bara sagt þér það hér og nú að það er ekkert varið í Slímóvits! Allavega hreint ekki þess virði að gera leit að því.

Lokað er á athugasemdir.