Biluð bilun

DVD upptökutækið mitt fraus í fyrradag í miðri upptöku og eftir það gat ég ekki opnað það.  Ég reyndi meðal annars að taka rafmagnið af en ekkert gekk.  Ég fór því með tækið í Elkó.  Hvað haldiði að gerist þegar starfsmaðurinn þar setur það í samband?  Allt virkar.  Þetta er alveg fyrirtaksleið til að láta sér líða einsog hálfvita.  “Þetta virkaði sko ekki heima, í alvörunni”.