Vantrúarhittingur áðan, að vanda skemmtilegt. Ég fékk far með Matta niðureftir og fékk síðan að keyra bílinn hans upp í Breiðholt. Ekki nóg með að þetta sé jeppi heldur sjálfskiptur líka. Ég keyrði svo varlega að ég var hissa að löggan hafi ekki stoppað mig vegna gruns um ölvun við akstur. Við Eygló röltum síðan heim frá Matta og Gyðu í kuldanum. Voðalega notalegt.
