Bakverkur

Í bandí náði ég einhvern veginn að fá hnykk á bakið.  Þetta var reyndar ekki svo slæmt að ég þyrfti að hætta að spila og því grunaði mig ekki að það væri alvarlegt.  Núna hefur verkurinn hins vegar verið nokkuð slæmur í svona tvo sólarhringa þannig að ég er farinn að hafa áhyggjur.  Ég ákvað meiraðsegja að sleppa tíma í Rómarsögunni út af þessu.  Fyrsta skrópið mitt á önninni.

Ég læt athuga þetta ef mér fer ekki líða betur bráðum.