Á lyfjum

Í gær fór ég á Læknavaktina og eftir cirka tveggja mínútna skoðun þá ákvað læknirinn að gefa mér vöðvaslakandi og íbúfen við bakverknum.  Mér leið svo vel í morgun að ég fór á skorarfund.  Núna er ég aðeins aumari en ég vona að ég skáni.  Ég er með einhvern örbylgjuhitaðann hitapoka á bakinu.

Ég er að reyna að skrifa Statement of Purpose en næ ekki að vera nógu sjálfhælinn.  Voðalegt er þetta.

Ég mæli síðan með því að þið sem þekkið mig eitthvað takið prófið sem ég vísaði á í síðustu færslu.