Predikarinn Björn Bjarnason

Björn Bjarnason segir að Vantrú hafi valið auglýsingamennsku umfram rökræður á föstudaginn langa.  Ég myndi endilega vilja ræða við hann um þann punkt en hann leyfir ekki athugasemdir á blogginu sínu.  Þeir sem vilja hins vegar í raun og veru rökræða um lög um helgidagafrið geta gert það á Vantrú, við erum óhrædd við rökræður.  Ég er nokkuð viss um að við vorum fyrsta vefritið á Íslandi sem leyfði athugasemdir við greinar.

Ef maður þarf að taka hið augljósa fram þá kom bingóið af stað rökræðum og það var tilgangurinn.