Ég hef fengið bæði videotæki (Dagbjört) og flatan skjá (Hafdís og Mummi). Það vantar reyndar fjarstýringuna á videoið og það virðist engin leið að fá það til að virka án hennar. Flati skjárinn fær heiðurssess ofan á hillu þar sem hægt er að nota hann fyrir myndaramma þegar ekki er verið að nota hann í aðrar þarfir. Ég get þá líka losað mig við gamla 17″ hlunkinn.