Lok Eigindlegra

Ég er kominn lengra með lokaskýrsluna en ég þorði að vona.  Ég á alveg að geta skilað henni á réttum tíma.  Mikið verð ég glaður maður á þriðjudag. En ég verð samt að fara að læra þá og undirbúa mig fyrir næsta kúrs.

Annars þá hef ég verið að hlusta á diskinn Ótta með Unun síðustu daga.  Það er eitthvað við Heiðu sem kemur mér í lærdómsstuð. En núna fer ég að pakka saman og halda heim á leið. Sjáumst.