Kosningar

Á morgun eru kosningar og ég hef þá von að þið kjósið gegn ríkisstjórninni, semsagt VG eða Samfylkinguna.  Ég hvet engan til að kjósa hina ófrjálslyndu Frjálslynda né Íslandshreyfinguna sem ekki kemur manni að.  Ég vona náttúrulega fyrst og fremst að þið kjósið VG og reynið þannig að koma henni Auði Lilju vinkonu minni á þing.  Hún gæti komist inn sem jöfnunarmaður og þá gilda atkvæði allsstaðar að.  Fátt væri betra fyrir landið en að koma henni að.