Myndaþjófur

Á Morgunblaðinu má finna frétt sem heitir Stela íslenskum myndum. Ég er með fréttaskot handa þeim, á Moggablogginu má finna mynd sem var stolið frá mér.

Þjófurinn heitir Sveinn Hjörtur Guðfinnsson og sat víst í áttunda sæti Framsóknarflokksins í Rvk suður í nýliðnum kosningum.

Ég sendi Morgunblaðinu póst og bað þá um að fjarlægja myndina. Ég bað þá síðan að útskýra fyrir Sveini Hirti að höfundarréttur gildir líka á internetinu. Sveinn Hjörtur virðist nefnilega hafa fattað að það er ákaflega auðvelt að fylla bloggið sitt af myndum ef maður bara stelur þeim.

4 thoughts on “Myndaþjófur”

  1. Mér finnst reyndar ágætt að eitthvað annað en öfgatrúleysisáróður sé settur á Vantrúarbloggið. :þ

Lokað er á athugasemdir.