Geymslutiltekt

Það hefur verið lengi á planinu að taka til í geymslunni. Líklega síðan að við fluttum inn. Ástandið var orðið þannig að það var varla hægt að ganga þar um. En við höfum verið að fara í gegnum kassa og ákvarða hverju má henda.  Núna þarf bara að koma draslinu upp í Sorpu. Ein ferð dugir varla, ekki einu sinni á okkar ofurbíl.