Mp3 spilarinn minn

Mp3 spilarinn minn tekur um gígabæti. Ég er þannig að mér þykir skemmtilegast að hlusta á heilar plötur en ekki bara eitt og eitt lag.

Á spilaranum mínum er:

  • How far to Asgaard með Tý, Eric the Red með Tý og Ragnarök með Tý. Ragnarök hefur verið tiltölulega lengi á spilaranum enda magnaður diskur. Hinum bætti ég við þegar ég var í námskeiðinu hjá Hákarlinum.
  • Early Years með Led Zeppelin.  Þar eru eiginlega öll mín uppáhaldslög, þar á meðal When the Levee breaks sem ég varð hrifnari af í kjölfarið á blúskúrsinum.
  • Það er ekki langt síðan að ég bætti við Nevermind með Nirvana.
  • Meds með Placebo er þarna líka.
  • Ein mappa er með ýmsum lögum, þar á meðal er We Used to be Friends með Dandy Warhols, Pet Shop Boys lög, nokkur með Supertramp og Jimi Hendrix.

Ég hef samt verið á leiðinni að skipta einhverju út.