Hjólandi bloggari?

Ég var að rölta yfir gangbrautaljósin hjá FS áðan og sá mann á hjóli sem ég kannaðist eitthvað við. Ég var gleraugnalaus þannig að ég var ekki alveg að kveikja. Hjólamaður nikkaði mig og ég held að þetta hafi verið Ágúst Borgþór. Ég er þó ekki viss. Allavega er munur eftir að maður fékk gleraugun að maður hefur afsökun fyrir að þekkja fólk ekki.