Hundabretti, Strætó og uppskrift

Duglegi maðurinn fór í Íþróttahús Háskólans í morgun og eyddi hálftíma á hundabrettinu eins og Tommi kallar það. Það var ekkert gaman að dröslast með íþróttatöskuna í tveim Strætóum. Ég má þó kalla mig heppinn miðað við Strætófélaga minn sem er víst núna klukkutíma að komast heim til sín.

Núna sit ég hér og reyni að forðast að koma mér að verki. Ég þarf að skrifa upp klukkutímaviðtal. Það er skemmtilegt að taka viðtöl og greina þau en millikaflinn sem felst í því að skrifa þau upp er frekar þreytandi.