Sérsveitin

Í Kastljósinu er umfjöllun um Sérsveitina. Ég efast um að það hafi verið ætlunin en mér fannst þetta ákaflega fyndið. Sérstaklega þegar þeir voru ekki alveg að ráða við að príla inn um glugga. Önnur atriði minntu fullmikið á sérsveitina sem kom fram í myndinni Whoops! Apocalypse. Sú sveit náði einmitt þeim frábæra árangri að missa einungis ellefu menn við það að slátra tuttugu vaxmyndum.