Frá henni

Mynd númer níu var Away from her. Hún var ágæt. Náði að vera fyndin inn á milli sem er nauðsynlegt í svona myndum. Áður en við fórum þá sagði ég Eygló að þetta væri kellingamynd. Ég held að hún hafi sannfærst þegar hún sá kynjahlutfallið í bíóinu. Reyndar voru undantekningar. Sá rithöfund sem var væntanlega þarna af bókmenntalegum ástæðum.