Ekki sofandi

Ég ætlaði að sofna snemma í nótt en gat það bara ekki. Erfitt að breyta rútínunni. En ég kláraði ritgerðina fyrir utan að heimildaskráin er eftir. Vantar líka blaðsíðunúmer á Jón Árnason.

Eygló kemur í heimsókn á fimmtudag, rétt fyrir miðnætti. Ég ætti að geta breytt sólarhringnum þá enda þarf ég að vakna snemma þann morgun. Síðan dundum við okkur við hitt og þetta. Förum til Dyflinnar þar sem ég mun að sjálfssögðu lýsa yfir kröfu til borgarinnar enda er ég afkomandi Ólafs hvíta Ingjaldssonar herkonungs. Síðan gæti verið að við hittum Bjarna Rúnar þar. Annars bara túristast og versla.