Að hafa skoðun á öllu

Ef maður skoðar Moggablogg þá sér maður fullt af fólki, eða mér finnst eins og ég hafi séð það oft kannski er ég bara að skoða sama fólkið aftur og aftur, sem lætur inn smá klausu um sjálft sig þar sem það segir að það hafi skoðanir á öllu.

Hér er smá vísdómsperla: Ef þú hefur skoðanir á öllu þá eru þessar skoðanir þínar væntanlega illa ígrundaðar og jafnvel heimskulegar.
Ég lenti í því einu sinni að vera spurður af blaðamanni DV hvaða álit á hefði á ákveðinni lagasetningu fyrir svona „Fólkið á götunni“ dálk. Ég vissi vel hvert almennt álit flokksfélaga minna var á þessu máli og ég hefði auðveldlega getað endurtekið einhverja frasa sem ég hafði heyrt. Þetta hefði væntanlega komið vel út fyrir flokkinn: „Fólkið styður okkur“. En vandamálið var að ég vissi ekkert um málið og ég hafði ekki raunverulega kynnt mér það. Ég tók því þá ákvörðun að afþakka þetta góða boð og hafa ekki skoðun á málinu.

Það væri nefnilega góð regla ef blaðamenn sem eru að reyna að fá skoðun „fólksins“ á málum myndu alltaf hafa svona þrjár rétt og rangt spurningar um viðkomandi mál sem fólk þyrfti að svara áður rétt en það mætti koma með skoðun sína. Sama með svona innhringiþætti. Eða er enginn þörf fyrir að fólkið sé upplýst? Hvað græðir nokkur á því að heyra hvað einhver sem ekkert raunverulega veit hefur að segja?
Fólk skrifar líka í blöðin án þess að vita hvað það er að tala um. Það heyrir áróður sinna manna og endurtekur hann umhugsunarlaust og er glatt með að hafa svona margar og merkilegar skoðanir. Engum dettur í hug að hlusta á hvað hinir hafa að segja. Þetta er liðakeppni. Þú finnur þér lið og þú styður það. Þú ert í góða liðinu, hinir eru í vonda liðinu.

Það eru ekki allar skoðanir jafnréttháar og það verðskulda ekki allar skoðanir virðingu. Að sjálfssögðu mega allir hafa sínar skoðanir en margar skoðanir eru einfaldlega rangar og jafnvel heimskulegar. Rasistar hafa til dæmis heimskulegar skoðanir sem ég ber enga virðingu fyrir.

Ég held ég hafi einhvern tímann bloggað um það að ég ætli ekki að hafa neina skoðun á mögulega upptöku Evrunnar. Það er einfaldlega þannig að ég veit alls ekki nógu mikið um málin og finnst ég ekki getað myndað mér skoðun. Ég held að það væri gríðarlega erfitt fyrir leikmann eins og mig að koma mér upp skilningi á þessum kerfum öllum saman.

Ég hef því tekið þá göfugu ákvörðun að hafa enga skoðun á málinu. Ef við fáum gríðarlega sterkan samhljóm hjá sérfræðingum, og þá ekki bara einhverjum sem hafa hagsmuna að gæta, þá mun ég kannski styðja að farið verði að dómi sérfræðingana en annars læt ég þetta vera.

Ég held semsé að það sé ekki göfugt að hafa skoðun á öllu og ég held að fólk, áður en það tjáir sig, ætti að hugsa með sér hvað veit ég raunverulega um málið. Það er hins vegar og verður göfugt að mynda sér skoðun með gagnrýnni hugsun, það tryggir ekki að þú hafir rétt fyrir þér en allavega var það heiðarleg tilraun.