Bekkurinn minn

Þetta er síðasta vikan og því fékk ég mynd af okkur bekkjarfélögunum. Við þrjú höfum verið saman í öllum tímum og eftir áramót verða þau bara tvö eftir.

bekkurinnminn.jpg Kari kanadísk, Óli íslenskur og John frá Galway.

Ég tek fram að báðar myndirnar sem voru teknar voru góðar af mér en þau skiptust á að vera minna flott. Ég níddist á John því það er yfirleitt þannig að það skiptir engu hvernig strákar líta út á myndum en stelpur geta tekið hlutum verr.