Pterry

BjörnFr gerist boðberi slæmra tíðinda. Terry Pratchett er með Alzheimers. Sjúkdómurinn er enn á byrjunarstigi og allar líkur á að hann geti klárað einhverjar bækur áður en þetta verður alvarlegt.

Ég ætla ekki að fara að skrifa einhver fyrirfram minningarorð um manninn en augljóslega er hann einn af mínum allra uppáhaldsrithöfundum. Án efa sá sem ég hef lesið hvað mest eftir. Vona bara það besta.

Ég er reyndar að lesa Small Gods þessa daganna. Frábær bók þó ég sé ekki alveg alltaf sammála því sem Pterry er að segja þar. Annars mæli ég yfirleitt með Mort sem góðri bók til að byrja á. Hún er fjórða sem hann skrifaði og að mínu mati sú fyrsta þar sem hann raunverulega finnur sig í þessum heimi sínum. Held að það hafi verið mistök hjá þýðendum að byrja á Colour of Magic, þó hún sé fyrst þá er hún voðalega ótýpísk.