Endalokin nálgast

Ég er búinn að taka til að mestu. Ryksugaði og skúraði frammi. Engin hjálp í samleigjendunum. Annar þegar farinn og hinn var greinilega með partí í nótt þar sem hann eða einhver gestur hans stal Babybel ostinum mínum. Ég ætla að senda línu á umsjónarfólkið þar sem ég tek fram að þeir hafi ekki hjálpað og að ef eitthvað verður mínusað af þeirra tryggingagreiðslu. Bögg.

En ég er að verða tilbúinn. Þetta virðist ætla að passa í töskurnar. Á eftir tek ég síðan rölt niður í bæ þar sem ég kaupi mér síðustu samlokuna í Centra og reyni síðan ná góðri mynd af ráðhúsinu. Skoða um leið minnismerkin um borgarstjórana tvo sem ég hef ekki ennþá gert.

Síðan er það bara að drepa tímann þar til ég yfirgef Arcadia rétt fyrir sex í fyrramálið  með taxa sem ég hef þegar pantað. Grand.