Að glymja

Kannski er ég bara svona mengaður af námi mínu en mér finnst fáránlegt að segja að ein útgáfa af málshætti sé réttari en önnur. Glymur hæst í tómri tunnu er útgáfa sem hefur greinilega gengið í einhvern tíma og þó hún sé hugsanlega ekki jafn gömul eða jafn algeng þá er hún ekki röng. Málshátturinn gengur fullkomlega upp í þessari mynd og heldur merkingu sinni.