Glæpaalda

68,5% óttast glæpaöldu í Breiðholti samkvæmt Vísi. Ég hlýt að vera bilaður því ég er algjörlega óhræddur búandi hérna. Samt er vafasamt fólk á leiðinni í kvöld. En ég bakaði fyrir það svo það ætti að vera til friðs.

Það er kannski rétt að taka fram að engir glæpir hafi verið framdir hérna í Bakkahverfinu. Raunar býr fólkið sem rændi Matta hérna rétt hjá en það fer greinilega út fyrir Bakkana til að fremja sín brot.