Fjölmiðlahóran

Það er kannski rétt að taka fram að ég er ekki jafn gráðugur á athygli fjölmiðla og fólk gæti haldið miðað við hve reglulega ég er þar. Viðtalið við okkur Ingibjörgu Hönnu í dag skrifast til dæmis algjörlega á Terry sem benti á mig. Þegar ég kom með nafnadótið þá var bara hringt í mig upp úr þurru. Reyndar var ég líka með nafnadót í dag en það var allt öðruvísi.

Það eru reyndar fullt af hlutum sem mér liggur á hjarta og finnst að ég ætti að hafa greiðan aðgang að fjölmiðlum til að tjá mig um. En fjölmiðlar hringja sjaldan í mig varðandi svoleiðis.