Og fólk vill láta þá hafa byssur

Ég verð að taka undir með Hauk, það væri skelfilegt ef þetta lið væri vopnað. Nú skal taka fram að mér sýnist þessir bílstjórar hafa komið fram eins og hálfvitar og ég tel að sýnt hafi verið fram á að málstaður þeirra er aumur en ef lögreglan getur ekki brugðist við svona mótmælum án þess að beita ofbeldi þá sjáum við hve skelfilegt væri að láta þetta lið fá öflugri vopn.

Lögreglan hefur sýnt fádæma dómgreindarskort frá upphafi. Geir Jón tók forystu  í þessu þegar hann bauð bílsstjórunum í nefið í fyrstu eða einum af fyrstu mótmælunum. Hvað var málið með það? Réttast hefði verið að byrja á að sekta menn eins og lög gera ráð fyrir. Það eru engan vegin gróf viðbrögð en sýnir að lögreglan tekur þetta alvarlega. Trúður sem kemur með neftóbak gefur til kynna að þetta sé bara sirkus.