Bara 14 eftir

Fyrir fimm árum kom út bókin Tolkien og hringurinn eftir Ármann Jakobsson. Sökum aðdáunar minnar á Ármanni hef ég síðan þá eytt öllum mínum fjármunum í að reyna að komast yfir öll eintökin af bókinni. Mér skilst að bókin hafi komið út í 1200 eintökum og ég er kominn með 1186 stykki sem prýða bókahillur heimilisins. Nú er bara að redda þessum 14 sem eftir eru.