Gubbaðu þessu út úr þér maður

Sagði Sigmar núna áðan í Eurovision atkvæðagreiðslunni. Mig grunar að sjónvarpsáhorfendur um allt land hafi einmit ítrekað öskrað eitthvað álíka á Sigmar þegar hann er að draga að segja hvort svör séu rétt eða röng í Gettu Betur. Maður kann þá list bara alls ekki.

Annars er eitthvað voðalega fallegt við að sjá lönd sem hafa verið í stríði og kúgað hver önnur gefa hvert öðru stig alveg á fullu.