Blogg í 24 stundum

Það er alveg fráleit tilvitnun í Ármann Jakobsson í 24 stundum í dag. Þar er tekinn bútur úr lengra bloggi án þess að nokkuð sé gefið til kynna að þetta hafi verið hluti af stærri heild. Stundum skiptir þetta engu máli en þarna er því sleppt sem bloggið fjallar raunverulega um og eftir stendur texti sem gefur kolranga mynd af því sem hann var að segja. Fáránleg vinnubrögð.