Undirskriftasöfnunin

Þessi undirskriftasöfnun er búin að slá í gegn. Ætli þeir sem eru að skrifa undir og láta taka af sér myndir átti sig á að orðið hefur verið við kröfunni (þó væntanlega ekki vegna aðgerðarinnar).

Ég er annars hissa að enginn sé að kasta fúleggjum eða rotnandi grænmeti. Kannski af því að Gordon var svo góður við íslensku sökudólgana að gera sig að skotmarki.