VG hallar sér að Sjálfstæðisflokknum

Eruð þið að grínast með þessa kenningu? Er þetta líklegt á meðan UVG liðar eru að prenta og dreifa barmmerkjum með slagorðinu Burt með ránfuglinn? Ránfuglinn er, fyrir þá sem ekki þekkja, fálki Sjálfstæðismanna.

Þar sem þessi kenning er almennt góluð af stuðningsmönnum Samfylkingarinnar er þetta augljóslega dæmi um frávarp. Að sjá og gagnrýna eigin galla hjá öðrum. Þið eruð í ríkisstjórn með Sjálfstæðisflokknum. Í dag er hægt að stoppa það.